
Salur til leigu
Samkomusalur er til leigu á Hallveigarstöðum, í hjarta Reykjavíkur.
Salurinn tekur 90 í sæti og 110 standandi og er leigður út fyrir hverskyns veislur, fermingaveislur, brúðkaupsveislur, árshátíðir, afmæli og erfidrykkjur, sem og fyrir ýmiskonar fundi, námskeið og aðrar uppákomur.
Ný lyfta og ný salerni eru í salnum.
Myndvarpi og hljóðkerfi er í salnum.
Smellið hér til að senda fyrirspurn um salarbókun.
Umsjónarmaður salarins er Auður Önnu Magnúsdóttir, sími 5571967.
Verðskrá fyrir útleigu
- Almenn leiga fyrir veisluhöld föstudaga, laugardaga og aðra frídaga.
þrif innifalin ásamt vaxdúkum á framreiðsluborð – Kr. 105.000
- Kvöldleiga virka daga mánudaga til fimmtudaga – kr. 90.000
- Leiga til undirbúnings fyrir veislur deginum/kvöldið áður: 20.000 kr.
- Leiga hálfur virkur dagur á skrifstofutíma (fyrir hádegi ) 33.000 kr.
- Leiga hálfur virkur dagur á skrifstofutíma (eftir hádegi ) 43.000 kr.
- Leiga heill virkur dagur á skrifstofutíma 55.000
- Umsjónarmaður fylgir salnum og kostar 5.000 kr. á tímann. Ef gestir eru fleiri en 50, þarf tvo umsjónarmenn og kostar þá 10.000 kr. á tímann
- Húseigandi áskilur sér rétt til að krefjast auka fyrirframgreiðslu, samanlagt 130.000 fyrir þrif vegna slæmrar umgengni sem endurgreidd verður ef umgengni er góð. Leigu skal greiða um leið og gengið er frá bókun á salnum.
Smellið hér fyrir reglur salarins.
Kvenfélög og samtök kvenna
Aðildarfélög Bandalags kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasambands Íslands og Kvenréttindafélags Íslands geta nýtt sér samkomusalinn til fundarhalda. Hafið samband við umsjónarmann til að panta salinn. Smellið hér lesa reglur fyrir notkun salarins á vegum aðildarfélaga.